Hæjjjjjj
Leitarbox

Myndasöfn
30.06.2008 16:12:05 / LindaRag

Hæ hæ

Þá er ég loksins búin að kaupa tölvu :) Tóm gleði.
Er samt ekki búin að vera neitt geðveikt dugleg að blogga en það á kannski eftir að breytast
Sumarið er búið að vera rosa gott.Tala nú ekki um hvað það er búið að vera gott veður :) við erum búin að fara á nokkrar útilegur & 1 ættarmót(hjá kallinum)
Núna styttist í að við förum til Danmerkur.Hlakka ekki smá mikið til.Hef aldrei farið til Dk.Sé H&M í hillingu:haha:
Róbert Daði er búin að vera rosa góður.Hann er orðin rúmlega 4500 gömm.Allt að koma hjá honum.Mér er farið að kvíða pínu fyrir þegar hann fer að skríða.Hann er nebbla algjör sperrileggur & hann á örugglega eftir að vera út um allt þegar hann fer að skríða & labba,en það er kannski allt í læ.Heldur manni í formi :)
Ætla plata Ragga bróðir til að kennar mér að setja inn myndir á síðuna þá getið þið fylgst með honum :O)

Heyrumst síðar

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 20:35:05 / LindaRag

I´m back

Já komiði blessuð & sæl.
Mín er bara búin að vera sá allversti bloggari sem getur fundist.
En það er mikið búið að ske síðan ég bloggaði síðast.
En það skemmtilegasta sem er búið að ske er að við trúlofuðum okkur á gamlársdag & ég er orðin mamma :haha:
Við Jón Karl eignuðumst strák þann 23.janúar en hann átti að koma í heiminn þann 8.mars.Ástæðan fyrir því að hann kom svona fyrr var sú að hann var ekkert að nærast.Litla elskan.En ég náði að fá stera milli jóla & nýars þannig að lungun í honum voru vel þroskuð þegar hann fæddist.
Hann var 1012 grömm & 38 cm.Lítill & flottur.Hann var á vökudeild í 5 vikur & 1 dag.Erfiður tími:( en þær eru svo yndilegar á vöku að tíminn var ekki lengi að líða.
Hann kom heim 28.febrúar & var þá 1882 grömm.
Núna er hann rúmlega 3 mánaða & er orðinn 3350 grömm.Ingibjörg sem kemur heim að skoða hann er mjöög ánægð með strákinn.Dafnar svoooo vel :haha: Förum með hann upp á Sólvang á föstudaginn & þá fær hann fyrstu sprautuna sína :cry: æji þá á eftir að vera svo sárt

Heyrumst síðar


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 18:46:57 / LindaRag

Helúúúúúú

Ég held að ég sé að komast í sumarskapið.

Sólin farin að skína og hunangsflugurnar farnar að láta sjá sig.Og það er ekki smá stærð á þessum flugum.Jæks sko.Var niðrí vinnu um daginn hjá Jón Karli og þar var ein á sveimi í glugganum.Össss,hún var svo stór.En ég tók samt 2 blöð og náði að reka hana út ;) er maður góður or what!!!

Í gær var smá bjórkvöld hjá okkur í vinnunni og við skelltum okkur á Players.Það var ekki neitt leiðinlegt.Var reyndar ekki neitt voða lengi.Mín var að fara vinna á Kenny daginn eftir.En mín var samt ekki neitt mikið slöpp.Ég er soddann naggli mar:haha: svo í kvöld ætlum við að skella okkur í afmæli til Ingu vinkonu okkar.

Framhald seinna


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 17:04:28 / LindaRag

Hæ hæ hæjjjjjjj!!!!!!

Komiði blessuð og sæl alle sammen.

Linda er bara ömurlegur bloggari.Enda hef ég nóg annað að gera en að vera tölvast alla daga ;) Thííííí!!!En hvað um það,vonandi höfðuð þið það gott um páskana.Ég hafði það mjööööög gott.Endalaus leti sem ég átti svo sannarlega skilið;) en núna er föstudagur og mín ætlar ekki að gera neitt aðra helgina í röð ;) stelpan getur þetta alveg ;) enda líka í staðin á að gera eitthvað næsta föstudag(27.apríl)Okkur skötuhjúonum er boðið í 50 afmæli og auðvita ætlum við ekki að missa af því :D

Góða helgi ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 14:02:24 / LindaRag

Glötuð

Linda er glataður bloggari.....

 

Lalalalallala


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 08:52:50 / LindaRag

Til hamingju !!!

 Hún Sæunn vinkona á afmæli í dag og ég vil óska henni til hamingju með daginn ;)

Kyss kyss og knús ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 09:27:02 / LindaRag

Helgin var ágæt

Þetta var ekki slæm helgi hjá okkur skötuhjúonum :haha:                                                            Á föstudeginum bauð ein gella okkur úr vinnuni heim til sín að sjá nýju íbúðina.Og hún mjöööög flott ;) sátum þar og spjallinu,skáluðum og gúffuðum í okkur snakk og allskonar kræsingar :haha: sumir fóru svo heim,aðrir í annað party og Linda litla skellti sér á Aroma.Kíkti reyndar bara stutt stopp þar því að á Laugardeginum var annað stuð :haha:            Vaknaði reyndar smá migluð á Laugardagsmorgninum og ein nöggl  horfin (surprise surprise) :( en fór heim í Lækjarbergið og var að miglast þar ! Íris sæta kom svo og reddaði nögglinni :haha: Takk Íris mín :haha: kyss og knús ! Jón Karl kom og sótti mig og við kíktum í bæinn.Fann þar einn bol sem var auðvitað ekki á útsölu og hann var samt keyptur :haha: skutlaði honum svo upp á Ásvelli því þeir áttu æfingarleik við Fylkir.Þeir töpuðu reyndar með 1 marki.En stóðu sig samt ágætlega og Jón Karl skoraði 6 mörk :haha: ég fór svo heim að taka mig til og svo var komið og sótt mig og brunað upp í Perlu.Össs,hvað það var flottur maturinn.Fyrir utan kjúklinga,lifra eitthvað pate.JAKKKKKK!!!!! þvílíkur og annar eins viðbjóður !!  Við skelltum okkur svo eftir matinn upp á Ásvelli og hittum þar gaurana frá Noregi  sem komu að keppa á minningarmótinu.Og þaðan var farið á Þorrablótið í Kaplakrika :haha: þvílíkur múgur og margmenni sem var á staðnum.Maður komst varla úr andirinu því maður var þar bara að heilsa öllum :) en við skemmtum okkur samt alveg ágætlega.                     Svo var auðvitað farið á KFC að borða í þynkunni á sunnudeginum :haha: Jón Karl fór reyndar svo að þjálfa og ég fór austur á Selfoss með Óðni að ná í myndlykil eða eitthvað .Maður var samt nú ekki alltof hress á sunnudeginum.Enda var bara tekin leti leti leti á þetta fyrir framann immban snakk :haha

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 09:16:22 / LindaRag

Helgin að koma

Þá er kominn 1.febrúar og bara 11 dagar í afmælið mitt ;) sttelpan að verða 26 ára 8) össs,hvað ég er orðin fullorðin !!!

En hvað ætlið þið að gera um helgina ??                           Á morgun förum við nokkrar úr vinnu heim tl einnar að skoða nýja húsið hennar og ætli að það verði ekki opnaðir nokkrir kaldir :haha:                                          

Svo á laugardaginn þá förum við skötuhjúin út að borða á Perlunni ásamt öllum hinum í Haukonum 8) ekki smá grand á því 8) svo veit ég reyndar ekkert hvað við gerum eftir matinn.....   hvort maður kíkir í bæinn eða skellir sér bara á Þorrablót Hafnarfjarða í Kaplakrika og skoppast um eins og asni meðan Paparnir spila :haha:

Læt ykkur vita seinna

Stelpan er farin að vinna !!!

Later...


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 18:16:01 / LindaRag

Ágæt helgi

Hæ Hæ!!!!!

Hvað segjið þið þá gott í dag ?
Ég segji allt ágæt fyrir utan þennan  þynkuhausverk :$ en fylgir oftast þegar maður fær sér aðeins í litlu tánna.
Á laugardaginn var ég að vinna á KFC.Ætla að vinna þar aðrahverja helgi  8) en þurfti samt ekki að vinna  á sunnudeginum.Um kvöldið fórum við í afmæli til Andra og þaðan kíkti ég svo í bæinn með strákonum en Jón Karl fór heim því hann þurfti að vakna snemma.Strákarnir hans voru að keppa í handbolta.A-liðið lenti í 1 sæti og B-liðið í 5 sæti :D en í dag sunnudag er ég búin að vera  á náttbuxonum því ég er hálf "slöpp" en drattaðist nú samt í buxur þegar ég fór út í búð að kaupa snakk.Ætla ekki að vera eins og gelgjurnar í grunnskóla og labba um á náttbuxum :) heheheheeh.
Ætla núna að skella mér heim og vekja kallinn og bjóða honum upp á KFC.Æji ég er svo góð stelpa :haha:

Later !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 10:50:38 / LindaRag

Hæ Hæ!!!!

Góðan daginn allir saman ???

Hvað segjið þið þá gott í dag?? vonandi eruð þið svona hress eins og ég ;) samt fyrir utan það að ég sé hress þá ég frekar þreytt :$en það er allt í læ.Ekki 100 í hættunni.

Um helgina fór ég upp í Húsafell í sumarbústað með fjölskyldunni og systrum hans pabba og ölli því liði sem því fylgir og svo komu auðvitað amma og afi líka með :haha:  fengum alveg brilliant veður alla helgina :) Það var tekið því bara rólega og sofið út :) en nú samt á laugardeginum var opnaður bjór kl:3 og hlammað sér fyrir framan immban og horft á leikinn.Og auðvitað unnu íslendingar :)

En get ekki skrifað meira því að ég þarf að fara vinna :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 17:29:57 / LindaRag

Hæ Hæ!!!!!!!

Sko!!!!

Eigum við eitthvað að ræða snjókomuna í dag.Ekki fannst mér það neitt leiðinlegt sko!!!Svo stefnir maður kannski bara á Bláfjöll um helgina ef það verður opið.Og"litli"bró ætlar með.Það verður ekki leiðinlegt.Við eigum ekki í neinum erfileikum með að hlæja og taka smá flipp á þetta.Við erum soddan Vatnsberar :haha: :haha:

En í dag var ekki neitt voða leiðinlegt.Reyndar var mikill gals í ormonum okkar útaf veðrinu og svellinu fyrir framan skólan.En það var ekki leiðinlegt því að ég og Krissa mín vorum sko ekki lengi að klæða okkur í fötin og skella okkur á svellið með þeim :haha: og vorum nánast úti allan tíman.Össsss,hvað við vorum duglegar!!!!

En jæja kallin er að fara ná í mig.Við ætlum að fara skella okkur í ræktina!! :haha:

Heyrumst síðar

P.S Gleðilegt ár krúttin mín og takk fyrir það gamla ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 19:28:11 / LindaRag

Gleðileg jól !!!

Þá eru jólin búin.Og ekki voru þau lengi að líða.Búin að bíða spennt eftir jólonum því að ég var ekki heima síðustu jól.Var reyndar ekki heima um þessi jól heldur.En ég var nú samt á landinu :haha: Við Jón Karl vorum heima hjá honum á aðfangadagskvöld.Það var sko ekki neitt slor máltíð sem að við borðuðum.Í forrétt var humar(naammmm) svo kom hamborgarahryggurinn með öllum því sem tilheyrir.Svo ekki nóg með það en það kom ís líka og það var sett möndlu í.En nei nei Linda fékk ekki möndluna.Heldur Anna systir hans.En kannski á næsta ári ;) svo þegar allir voru búnir að borða sig pakksaddan þá var gengið frá og allir farnir að gramsa í pakkana.Og það var ekki neitt lítið sem að við fengum.Við fengum náttborð,vöfflujárn,djúpsteikingarpott,pottasett,föt,ég fékk nýjan snjóbrettagalla(NIKITA) :haha: jibbí, og margt margt fleira.Komum svo við hjá mömmu og pabba og heilsuðum aðeins upp á þau.Svo er auðvitað hefð hjá mér og Lísu aða hittast heima hjá henni í köku og við ætluðum að bítta á gjöfum.En ekki var það neitt voða gaman.Haldið þið ekki að Lísa hafi bara gleymt minni:( en það er svosem allt í læ.Þá á ég bara eftir að opna einn pakka :haha: svo var komið sér heim og sétt nýtt á rúmið.Æji hvað það var notó að hoppa upp í rúm :haha:  nenni ekki að skrifa meir .

             Gleðileg jól!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 12:55:09 / LindaRag

Á Grensás

Mín er sko bara gkötuð að blogga :( en það er svosem allt í læ.Ætla samt ekki að blogga neitt voða mikið núna.En helgin hjá mér var alveg fín.Á föstudeginum var staffadjamm og það var ekki leiðinlegt.Það var sko drukkið og hlegið mikið.Allavegana hló Linda litla mikið.Kom meira að segja minn skemmtilegi bronkítis hlátur :S svo á laugardeginum var þynnka og skemmtileg heit framm að hádegi.Svo skellt sér aftur í ríkið til að fylla meira á búsið.Ekki alveg eðlilegt.En hvað um það.Maður er bara ungur einu sinni ekki satt.Um 4 leytið fór ég á Haukar-Fylkir og auðvitað unnu Haukarnir ;) skelli mér svo heim eftir leikinn,opnaði bjór,skellti mér í djammgallan og plataði mömmu til að skutla mér :haha: gaf henni 2 bjóra í staðinn.Svo heimsótti ég hana Minnu og við kíktum í eitthvað partý og svo beint upp á Ásvelli í bjór og lambalæri.Á sunnudeginum var aftur þynnka og mín svaf bara til 2.Sæti minn þurfti svo að fara þjálfa.Aumingja hann!!! en ég hélt svo áfram að kúra.Teindó bauð okkur svo í mat og svo kíktum við í bæinn.Ætluðum að kaupa jólatré en tréð sem að við sáum glansaði aðeins og mikið.Ætlum að skoða seinna bara.En núna er ég upp á Grensás í viðtölum og rannsóknum svo að ég get ekki bloggað meir.En ég skal reyna að vera duglegri að blogga.

Heyrumst :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 12:29:34 / LindaRag

Jóóóóóóóól!!!!!!!

Það eru bara 19 dagar til jóla


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 22:42:12 / LindaRag

1.DES!!!!!!

 Þá er kominn 1.des og bara 23 dagar til jóla :haha: Jólin eru alltaf jafn yndisleg :D

Í dag er 1.des og þá er alltaf ratleikur í Áslandsskóla.Er ekki neitt búin að vera bíða neitt spennt eftir þessum degi.Ratleikur er ekki alveg það skemmtilegasta sem að ég geri.En ég var í hóp með fyrsta bekk og upp í fjórða bekk.Allir hóparnir voru blandaðir saman.Okkar hópur var voða fínn og okkur gekk bara ljómandi vel.Unnum samt ekki,en það er ekki númar 1,2 og 3.Bara að vera með og hafa gaman af.En það vorum sumir sem voru með keppnisskapið og hlupu út um allt eins og það væri raketta í rassgatinu á þeim :D Svo eftir hádegismat máttu allir fara heim nema þeir sem fóru í heilsdagsskólann.Voru reyndar ekki neitt margir krakkar í dag en það var allt í læ því við áttum það svo sannarlega skilið eftir allt þetta hlaup um Ásland.Vá hvað ég var eitthvað þreytt eftir þetta.Fann það bara þegar ég settist niður þá kom öll þreytan.Langaði helst bara að senda krakkana heim og loka.En ekki var það nú hægt :cry: eftir vinnu hitti ég Krissu í Smáralindini og þar vorum við pínu að búðarápast.Skelltum okkur svo í Hagkaup og ætluðum að versla jóladagatal.En nei nei ekki var það alveg að ganga upp.Þau eru bara öll uppseld hvorki meira né minna.Og við vorum sko ekki par sáttar með það !!!

Sótti svo Jón Karl og vin hans og æfingu og svo beint þaðan á nýja KFC í Hafnarfirði.Þetta er orðið alveg svaka flott hjá þeim.Núna er líka hægt að labba niður og sitja þar.Við settumst þar en áttuðum okkur svo á því að það var ekki neitt voða sniðugt.Ef að maður gleymdi einhverju þá þurfti maður að labba upp.Ekki að það sé eitthvað erfitt.Vorum bara ekki að nenna því í dag.Er búin að labba nóg í dag.Plús það að ég skellti mér í ræktina um morgunin.Gat nú alveg sleppt því.Tjaaa,samt ekki.Finnst alveg hræðinlegt að missa dag úr ræktinni þegar maður er byrjaður svona á fullu.Voða hressandi.Í kvöld ákvað ég svo að stinga af heim til mömmu og pabba.Vinur Jón Karls var að koma í heimsókn og ég nennti ekki alveg að vera þarna.Þeir hittast líka svo sjaldan að það er örugglega mikið spjalla um heima og geima sem ég veit ekki neitt um :haha:

Þessa helgina ætla ég ekki að gera neitt.Bara vera löt og sonna :haha: held að það sé nú lagi svona af og til ;)

Vona að þið gerið nú eitthvað skemmtó  um helgina

Tútilú


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 30261
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012